7.5 C
Selfoss

Menntaverðlaun Suðurlands afhent og styrkjum úthlutað

Vinsælast

Menntaverðlaun Suðurlands voru afhent nýverið í Gaulverjabæ, hátíðarsal FSu. Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Árborgar hlaut verðlaunin að þessu sinni. Þau hafa staðið fyrir hagnýtu og ókeypis íslenskunámskeiði fyrir foreldra grunnskólabarna með fjöltyngdan og menningarlegan bakgrunn.

Dagskráin hófst á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnesinga. Síðan flutti styrkþegi ársins 2022, Anna Selbmann, fróðlegt erindi með myndum um hegðunarmynstur grindhvala og háhyrninga í kringum Vestmannaeyjar. Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands flutti ávarp ásamt forseta Íslands Höllu Tómasdóttur sem afhenti nýjum styrkþegum fjárupphæð til að efla frekari rannsóknir á viðfangsefni þeirra.

Anna Guðrún Þórðardóttir, doktorsnemi við Landbúnaðarháskóla Íslands, fékk styrk fyrir verkefnið Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisaðstæðum og Clémence Daigre, doktorsnemi við Háskóla Íslands, hlaut styrk til verkefnisins IceAq sem á að auka skilning á breytingum í vatnskerfum jökla.

Anton Kári Halldórsson formaður stjórnar SASS hélt hvatningarræðu og Soffía Sveinsdóttir skólameistari FSu hélt utan um dagskrána. Að lokinni athöfn gæddu gestir sér á brauð- og marengstertum í mötuneytisrými skólans.

Nýjar fréttir