Á vef Stjórnarráðs Íslands kemur fram að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafi lagt fram frumvarp á Alþingi til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Markmið þess er að bregðast við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 15. janúar 2025 í máli nr. E-2457/2024. Með dóminum var ógild heimild Umhverfisstofnunar frá 9. apríl 2024 til breytinga á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun sem og ákvörðun Orkustofnunar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun.
Boðaðar lagabreytingar eru að mati ráðherra nauðsynlegar til að bregðast við þeirri óvissu sem skapast hefur í kjölfar niðurstöðu fyrrnefnds héraðsdóms þar sem niðurstaðan útilokar í raun hvers kyns framkvæmdir á Íslandi sem leiða til breytinga á vatnshloti. Hér getur verið um að ræða framkvæmdir vegna vatnsaflsvirkjana og ýmsar aðrar framkvæmdir, svo sem flóðavarnir, vegagerð og gerð siglingavega svo fáein dæmi séu tekin.
„Með frumvarpinu eyðum við strax óvissu og komum í veg fyrir frekari tafir á þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um aukna orkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land,“ segir Jóhann Páll.