10.8 C
Selfoss

Baktería og E. coli í svína- og sviðasultu á þorrablótunum

Vinsælast

Föstudagskvöldið 31. janúar og laugardagskvöld 1. febrúar sl. voru haldin þorrablót á Borg í Grímsnesi og að Versölum í Þorlákshöfn. Í kjölfarið komu fram veikindi hjá fjölmörgum gestum. Bárust upplýsingar um veikindi hjá 67 gestum úr Grímsnesi og 73 frá Þorlákshöfn, samtals 140 einstaklingum, en mögulega hafa fleiri veikst. Einkenni voru fyrst og fremst niðurgangur og kviðverkir en hluti tilkynnti einnig um ógleði, uppköst og hita.

Mast hefur greint frá því á síðu sinni hvað orsakaði veikindin.

Saursýni tekin úr einstaklingum

Saursýni voru fengin frá nokkrum einstaklingum sem veiktust til að reyna að greina orsakavald og einnig voru tekin sýni til rannsókna úr matvælum sem voru á boðstólum á þorrablótunum. Bæði voru tekin sýni úr afgöngum og einnig úr matvælum sem enn voru í lokuðum, órofnum umbúðum frá framleiðanda.

Niðurstöður þessara rannsókna benda til þess að orsakavaldur sýkingarinnar geti verið svokallaður enteropathogenic E. coli (EPEC) og/eða Bacillus cereus-bakteríur. Niðurstöður sýnatöku leiddu í ljós að svínasulta og sviðasulta af hlaðborðunum voru mengaðar af bakteríunni Bacillus cereus og svínasultan að auki af E. coli. Háar heildargerlatölur benda til þess að matvælin hafi staðið í töluverðan tíma án viðunandi kælingar, sem gefur bakteríunum færi á að fjölga sér.

Varan sjálf án mengunar

Greining á sýnum úr sviðasultu og svínasultu úr órofnum umbúðum frá framleiðendum leiddi hins vegar í ljós að varan sjálf var án mengunar. Því virðist sem kælikeðja matvælanna hafi rofnað en með kælikeðju er átt við kerfi sem tryggir viðeigandi geymslu, flutning og meðhöndlun vara sem eru viðkvæmar fyrir hitabreytingum. Þessar niðurstöður benda til að meðferð matvælanna hafi verið ábótavant hjá veisluþjónustunni.

Í mörgum tilkynningum nefndi fólk að grunur beindist að kartöflum og uppstúfi sem orsakavaldi en ekki náðist að taka sýni af þeim matvælum þar sem afgangar voru ekki til staðar. Krosssmit getur orðið á milli matvæla og ekki liggur ljóst fyrir hvar gerlarnir áttu upptök sín.

Veisluþjónusta Suðurlands ekki með starfsleyfi

Mast tekur fram að stýrihópur um rannsókn hópsýkingarinnar árétti að hlaðborðum fylgi áhætta. Algengar orsakir matarborinna sjúkdóma eru skortur á hreinlæti við meðferð matvæla og rangt hitastig sem getur orðið til þess að örverur ná sér á strik í matvælum.

Við fyrstu eftirlitsheimsókn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands í Veisluþjónustu Suðurlands var alvarlegt frávik skráð þar sem starfsemin var án starfsleyfis. Einnig var aðstaða til handþvotta ófullnægjandi í eldhúsi. Heilbrigðiseftirlitið fór yfir verkferla með veisluþjónustunni og mun fylgja eftir að úrbætur verði gerðar.

Nýjar fréttir