Tor Steinsson Sorknes er matgæðingur vikunnar.
Ég þakka kærlega fyrir þessa áskorun og er virkilega kominn tími til að ég fái að láta ljós mitt skína líka hér. Mér finnst lok janúar vera svona algjör fiskiréttatími, og vil þess vegna deila með ykkur rétt sem ég get ekki látið vera að gera að minnsta kosti einu sinni í þessum mánuði.
600 g ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur skorinn í bita
2 dl rækjur (má sleppa)
2 stk. gulrætur
1 stk. púrrulaukur
1 stk. rauð paprika
1 stk. græn paprika
1 stk. græn epli
2 msk. smjör
2 tsk. gott karríduft
200 g Gamli rjómaosturinn frá Gott í matinn
1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
1 dl mangó chutney
Rifinn bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur
Paprikuduft, salt og pipar
Skref 1: Skerið fiskinn í passlega bita og kryddið með salti og pipar, leggið til hliðar.
Skref 2: Saxið grænmetið og eplið í frekar smáa bita. Hitið pönnu á meðalhita og bræðið smjörið. Steikið grænmetið í smjörinu þar til það mýkist aðeins (geymið eplabitana). Bætið karríduftinu saman við og steikið það með í 1-2 mínútur. Bætið rjómaostinum, sýrða rjómanum og mangó chutney út á pönnuna og bræðið þetta saman. Þynnið með örlitlu vatni ef ykkur finnst þetta of þykkt, en athugið að það kemur líka vökvi úr fiskinum þegar hann eldast. Dreifið eplunum og rækjunum yfir og hrærið saman. Smakkið til með salti og pipar. Leggið svo fiskinn ofan á sósuna og grænmetið og leyfið þessu að malla þar til fiskurinn er nánast eldaður í gegn.
Skref 3: Stráið osti yfir ásamt smá paprikudufti og stingið inn í ofn undir grill í 5 mínútur eða þar til osturinn er gullinn brúnn. Stráið yfir saxaðri steinselju og berið fram með góðu salati og brauði eða hrísgrjónum.
Ég skora næst á Steinar Sigurjónsson. Hann er ekki bara sætur og skemmtilegur, heldur er hann líka töframaður í eldhúsinu.