Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun sem tekur gildi á morgun, fimmtudag, klukkan 10 og stendur til klukkan 18.
Gert er ráð fyrir suðaustan 15-23 m/s með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni í Þrenglsum, á Hellisheiði og í uppsveitum. Einnig er búist við talsverðri hálku. Varasamt ferðaveður verður á meðan viðvöruninni stendur.