-8.3 C
Selfoss

Sjálfstæðisfélagið Ægir skorar á Guðrúnu

Vinsælast

Enn bætist í áskoranir á Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Stjórn Sjálfstæðisfélagsins Ægis lýsir yfir stuðningi við hana og hvetur hana til að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi.

„Guðrún hefur sýnt sig og sannað sem dugmikinn og framsýnan stjórnmálamann með djúpa þekkingu á íslensku samfélagi og hefur hún ávallt barist fyrir hagsmunum landsmanna með miklum þrótti. Í henni býr traustur leiðtogi en með hana í fararbroddi mun Sjálfstæðisflokkurinn halda áfram að vera öflugt og framsýnt stjórnmálaafl sem berst fyrir frjálsum markaði, einstaklingsfrelsi og öflugu samfélagi,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

 „Við hvetjum alla Sjálfstæðismenn til að styðja Guðrúnu í þessu mikilvæga verkefni!“

Nýjar fréttir