Sjálfstæðisfélögin í Árborg og Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Árborg hvetja Guðrúnu Hafsteinsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi til að bjóða sig fram til formanns á landsfundi flokksins sem fram fer 28. febrúar til 2. mars n.k.
„Guðrún hefur af krafti, dugnaði og framsýni komið inn í íslensk stjórnmál og óhikað barist fyrir bættu samfélagi með sjálfstæðisstefnuna að leiðarljósi.
Fjölþætt reynsla Guðrúnar úr atvinnulífinu, úr félagsstarfi, á pólitískum vettvangi og ekki síst sem dómsmálaráðherra á krefjandi tímum er reynsla sem ný forysta Sjálfstæðisflokksins þarf á að halda,“ segir í tilkynningu frá félögunum.
Undir þetta rita Atli Dagur Guðmundsson úr Hersi, félagi ungra Sjálfstæðismanna, Ingvi Már Guðnason úr Sjálfstæðisfélaginu Óðni, Gísli Rúnar Gíslason úr Sjálfstæðisfélagi Eyrarbakka, Jason Orri Jakobsson úr Sjálfstæðisfélagi Stokkseyrar og Guðmundur Ármann Pétursson úr fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Árborg.