-7.8 C
Selfoss

Selfoss sigraði Aldursflokka- og Unglingamót HSK í frjálsum

Vinsælast

Aldursflokkamót HSK 11-14 ára fór fram í Lindexhöllinni 25. janúar sl. Mörg afrek litu dagsins ljós og margir að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum. Lið Selfoss sigraði stigakeppni með 288 stig en Dímon varð í öðru sæti með 202,5 stig. Magnús Tryggvi Birgisson var atkvæðamestur í liði Selfoss en hann sigraði allar 5 greinarnar í 14 ára flokki og varð fimmfaldur HSK meistari. Hilmir Dreki Guðmundsson varð þrefaldur HSK-meistari í flokki 12 ára og Ásta Kristín Ólafsdóttir varð þrefaldur HSK-meistari í flokki 14 ára.

HSK-meistarar frjálsíþróttadeildar Selfoss urðu eftirtaldir aðilar:

12 ára flokkur:

Andri Már Óskarsson: 60m hlaup 9,65 sek.

Hilmir Dreki Guðmundsson: 60m grind 12,49 sek – hástökk 1,20m – langstökk 4,14m – kúluvarp 6,88m

13 ára flokkur

Andri Fannar Smárason: 60m grind 11,99 sek.

Hildur Þórey Sigurðardóttir: 60m hlaup 9,68 sek.

Þórhildur Salka Jónsdóttir: 60m grind 13,10 sek – Langstökk 3,58m

14 ára flokkur

Magnús Tryggvi Birgisson: 60m hlaup 8,75 sek –60m grind 12,02 sek – hástökk 1,40m – langstökk 4,58m – kúluvarp 9,64m

Ásta Kristín Ólafsdóttir: 60m hlaup 9,22 sek – hástökk 1,31m – kúluvarp 8,70m

Unglingamót HSK 15-22 ára fór fram sama dag. Lið Selfoss gjörsigraði stigakeppni félaganna með 210 stig en Dímon varð í öðru sæti með 60 stig. Anna Metta Óskarsdóttir varð fjórfaldur HSK-meistari í flokki 15 ára. Kári Sigurbjörn Tómasson varð þrefaldur HSK-meistari í flokki 15 ára og Vignir Steinarsson tvöfaldur HSK-meistari í flokki 18-19 ára.

HSK-meistarar frjálsíþróttadeildar Selfoss urðu eftirtaldir aðilar:

15 ára flokkur:

Kári Sigurbjörn Tómasson: 60 m hlaup 9,32 sek – Hástökk 1,30m – Langstökk 4,21m

Stormur Leó Guðmundsson: Kúluvarp 7,54m

Anna Metta Óskarsdóttir: 60m hlaup 8,47 sek – 60m grind 9,98 sek – Hástökk 1,56m – Langstökk 4,76m –

Adda Sóley Sæland: Kúluvarp 9,36m

16–17 ára flokkur:

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson: 60m hlaup 7,60 sek.

Vésteinn Loftsson: Langstökk 5,72m

Kristján Kári Ólafsson: Kúluvarp 13,78m

Bryndís Embla Einarsdóttir: Kúluvarp 11,59m

18 –19 ára flokkur

Daníel Breki Elvarsson: 60m hlaup 7,82 sek.

Vignir Steinarsson: 60m grind 12,13 sek – langstökk 4,61m

Dagmar Sif Morthens: Kúluvarp 9,11m

Ljósmynd: Umf.Selfoss.

Nýjar fréttir