-7.8 C
Selfoss

Lindex og FRÍ „lyfta heilli þjóð“

Vinsælast

Á dögunum var undirritaður samstarfssamningur Lindex og Frjálsíþróttasambands Íslands sem tók gildi þegar í stað og gildir fram að Ólympíuárinu 2028. Lindex verður með samningnum aðalstyrktaraðili FRÍ sem og landsliðs Íslands í frjálsum íþróttum.  Aðilar setja markið á að „lyfta heilli þjóð“.

Um er að ræða stórhuga samkomulag um að „lyfta heilli þjóð!“ saman og vilja FRÍ og Lindex byggja undir bættan árangur afreksmanna í frjálsíþróttum, stórauka sýnileika og áhuga á íþróttinni og síðast en ekki síst að stefna að aukinni virkni almennings og ungmenna í ástundun frjálsra og mætingu á frjálsíþróttviðburði, heilsunnar vegna.

Lindex hefur um árabil stutt félög innan frjálsíþrótta með ólíkum hætti eins og stuðningur við Gamlárshlaup ÍR, mótahald o.fl. en samningurinn mun nú virka sem eins konar hattur yfir þann stuðning auk þess sem duglega er komið að uppbyggingarverkefnum eins og Krakkafrjálsum sem ætlað er að auka möguleika yngri kynslóða til að kynnast íþróttinni, mótahald á alþjóðavettvangi og stuðningur við landslið Íslands í frjálsum auk stuðnings við aðildarfélög FRÍ.  Samningnum er einnig ætlað að gefa öðrum stuðningsaðilum leið til að styðja við íþrótt sem hefur um árabil gefið þjóðinni ástæðu til að fagna í sameiningu en þaðan er hugmyndafræðin um að „lyfta heilli þjóð“ fengin eins og hinn frækni frjálsíþróttamaður og þjálfari, Vésteinn Hafsteinsson komst að orði.

Lindex á Íslandi er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 2011 í gegnum umboðssamning við Lóu D. Kristjánsdóttur og Albert Þór Magnússon.  Lindex var stofnað árið 1954 í Alingsås í Svíþjóð og er í dag alþjóðlegt tískufyrirtæki með um 4.300 starfsmenn og verslanir í 17 löndum auk netverslana um heim allan.  Á Íslandi eru tíu Lindex verslanir um land allt auk netverslunar www.lindex.is.

„Það eru frábærar fréttir fyrir FRÍ að fá sterkan aðila eins og Lindex til liðs við okkur og magnað að finna metnaðinn og hugsjónina í að lyfta heilli þjóð í sameiningu. Samstarfið gerir okkur kleift að taka næstu skref, m.a. í útbreiðslu og fræðslu sem er grunnurinn að velgengni frjálsíþrótta nú sem í náinni framtíð. Auk þessa er frábært að fá þau inn sem okkar aðalstyrktaraðila fyrir landsliðið okkar og okkar afreksfólk,“ segir Guðmundur Karlsson framkvædar-og afreksstjóri FRÍ um samstarfið við Lindex.

„Frjálsar hafa fylgt mér í gegnum lífið og margar af mínum fyrirmyndum, vinum og félögum koma úr íþróttinni.  Ég á miklu láni að fagna að geta fylgst með næstu kynslóð nú taka við keflinu ef svo má segja og að eiga möguleika, í krafti okkar frábæru viðskiptavina í Lindex, að styðja við frábært starf þess góða fólks sem myndar frjálsíþróttastarf á Íslandi.  Ég hlakka til að fagna höndum tveim þegar árangur samstarfsins lítur dagsins ljós á næstu árum,“ segir Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Í kvöld, 27. janúar kl. 19:30, verður svo slegið upp í veislu á RIG, þar sem alþjóðlegar frjálsíþróttastjörnur munu etja kappi við helstu stjörnur íslenskra frjálsíþrótta en á síðasta ári bætti Bald­vin Þór Magnús­soneigið Íslands­met í 1500 metra hlaupi inn­an­húss og stefnir á það sama í ár.  Silja Úlfarsdóttir verður kynnir og DJ Dóra Júlía sér fyrir partístemmningu.  Mótið er sýnt beint á RÚV 2. Miðasala fer fram á www.corsa.is en nánar má lesa um mótið hér: https://fri.is/frjalsithrottaveisla-a-rig-2025/.

Nýjar fréttir