Uppbygging undanfarinna ára á Suðurlandi hefur verið með ótrúlegum hætti. Íbúðum fjölgar á hverju ári og samhliða byggist upp fjölbreytt atvinnustarfsemi. Atvinnusvæðið er stórt og teygist yfir suðvesturhornið og hluta Suðurlands þar sem einstaklingar og fjölskyldur eru í auknum mæli að velja sér búsetu.
Öflug uppbygging
Innan Sveitarfélagsins Árborgar hefur uppbyggingin verið öflug en um leið skapað krefjandi áskoranir. Við höfum tekist á við áskoranirnar og skapað aðstæður sem styðja við áframhaldandi vöxt samfélagsins. Samstarf sveitarfélagsins við framkvæmdaaðila er mikilvægt enda sameiginlegur ávinningur að íbúðauppbygging sé stöðug, innviðir til staðar og atvinnustarfsemi vaxi. Slíkt skilar öflugra samfélagi sem getur tekið á móti nýjum íbúum án þess að skerða þjónustu við þá sem fyrir eru.
Fólk og fyrirtæki sýna uppbyggingu innan Sveitarfélagsins Árborgar mikinn áhuga. Gangi áætlanir eftir verða byggðar upp yfir 3000 fjölbreyttar íbúðir á næstu sex til tíu árum ásamt því að nægt framboð verður á lóðum undir atvinnustarfsemi. Því gildir að samgöngur séu einnig í lagi og mæti eftirspurn. Það er sérstakt fagnaðarefni að framkvæmdir við „Selfossbrú“ yfir Ölfusá séu að hefjast. Hún verður gríðarleg samgöngubót sem styrkir svæðið mjög auk þess að veita atvinnu við byggingu hennar og vegagerð. Þessir þættir eru í takti við stefnu bæjarstjórnar og samþykkta húsnæðisáætlun Árborgar og ánægjulegt að sjá framvindu mála.
Tryggja lóðir til framtíðar
Samkvæmt tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er Sveitarfélagið Árborg meðal örfárra sveitarfélaga sem tryggt hafa nægt lóða- og íbúðaframboð miðað við þörf. Slíkt er mjög jákvætt og hvetur okkur til að tryggja jafnframt nægt framboð lóða undir atvinnustarfsemi og nú þegar eru tilbúnar lóðir og fleiri bætast við á vormánuðum.
Í skipulagsmálum er mikilvægt að horfa til lengri tíma, reyna að sjá fyrir þróun og mótun byggðar, innviða og samgangna og tengingu þeirra við núverandi byggð. Innan Sveitarfélagsins Árborgar er þróunin ör með uppbyggingu nýrra hverfa, miðbæjar og breytinga í eldri hverfum á Selfossi. Spennandi tækifæri eru við ströndina á Eyrarbakka og Stokkseyri með nánd við sterka þjónustukjarna og höfnina í Þorlákshöfn. Framtíð Suðurlands er björt og ljóst er að Árborg er og verður frábær búsetukostur sem og miðja verslunar, þjónustu og iðnaðar til framtíðar.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg.