Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar voru íbúar Rangárþings eystra 2167 talsins þann 1. janúar 2025. Þetta er mesti íbúafjöldi sem sveitarfélagið hefur haft og nemur fjölgunin milli ára 7,97%.
Kemur þetta fram á heimasíðu Rangárþings eystra.
„Sveitarfélagið stendur vel, innviðir eru sterkir, uppbygging heldur áfram sem aldrei fyrr og íbúum okkar heldur áfram að fjölga“, segir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra.
„Fjölgun íbúa er jákvæð þróun en kallar á mikla ábyrgð. Við þurfum að tryggja að innviðirnir okkar standist þessa fjölgun og að við getum veitt íbúum lögbundna þjónustu. Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur þessu hlutverki alvarlega og horfir björtum augum til framtíðarinnar.“
Mikil uppbygging íbúða
Fjölgun íbúa kallar á aukna uppbyggingu húsnæðis í Rangárþingi eystra. Um 100 íbúðir eru nú í byggingu víðs vegar um sveitarfélagið. Þessar íbúðir eru á mismunandi byggingarstigum, allt frá útgáfu byggingarleyfis til lokaúttektar.
„Það er mikilvægt að uppbygging húsnæðis haldi í við fjölgun íbúa,“ segir Anton Kári. „Undanfarin fjögur ár höfum við náð að halda jafnvægi á milli íbúðauppbyggingar og íbúafjölgunar.“
„Sveitarfélagið leggur áherslu á að skapa góðar aðstæður fyrir íbúa sína, bæði nýja og gamla. Með sterkum innviðum, öflugri uppbyggingu og blómlegu atvinnulífi er Rangárþing eystra aðlaðandi staður til að búa og starfa,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins.