-3.2 C
Selfoss

Fjórði besti árangur í hástökki frá upphafi

Vinsælast

Eva María Baldursdóttir, Umf. Selfossi, var með glæsilega opnun í hástökki um helgina er hún stökk yfir 1,80 m í hástökki og sigraði með yfirburðum. Hún bætti besta árangur sinn um 2 cm og setti HSK-met í flokki 19-22 ára. Þessi árangur hennar er besti árangur ársins í hástökki og fjórði besti árangur í hástökki kvenna frá upphafi. Árangrinum náði hún á móti í Bandaríkjunum sem heitir PSU Challenge og er á vegum Penn State. Eva María hefur verið að glíma við meiðsli í dágóðan tíma og þessi árangur því virkilega eftirtektarverður. Hún stundar háskólanám og æfingar í Bandaríkjunum.

Nýjar fréttir