Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi sem gildir frá klukkan 23:00 í kvöld fram til 07:00 á laugardagsmorgun.
Spáð er austan og norðaustan 13-23 m/s og hviðum yfir 35 m/s. Hvasssast verður og mest úrkoma undir Eyjafjöllum. Búast má við snjókomu eða slyddu á láglendi með lélegu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum.