Eftir umfangsmiklar endurbætur hefur Hótel Selfoss skrifað undir samning við Marriott International um að hótelið verði Four Points by Sheraton hótel, eitt af yfir 30 framúrskarandi vörumerkjum Marriott Bonvoy.
Marriott Bonvoy er ein stærsta og þekktasta hótelkeðja heims, þekkt fyrir afburðaþjónustu og mikil þægindi.
„Við erum mjög spennt að fá Hótel Selfoss inn í Marriott Bonvoy sem Four Points by Sheraton hótel. Staðsetning hótelsins er frábær, þjónustan framúrskarandi, herbergin rúmgóð og öll aðstaða til fyrirmyndar,“ segir Axel Steinbach, þróunarstjóri Marriott International fyrir Norðurlöndin.
Með því að tengjast Marriott mun Hótel Selfoss styrkja stöðu sína á hótelmarkaði og bjóða gestum upp á nýja og spennandi möguleika. Hótel Selfoss er staðsett á stórglæsilegum útsýnisstað við bakka Ölfusár í hjarta Suðurlands, sem gerir það að hinum fullkomna áfangastað fyrir þá sem vilja njóta alls þess besta sem Selfoss og nágrenni hafa upp á að bjóða.
„Við erum mjög ánægð með þessa breytingu og teljum að samstarfið við Marriott muni hjálpa okkur að veita gestum hótelsins enn betri upplifun. Jafnframt mun tengingin við Bonvoy skapa ný markaðstækifæri fyrir Hótel Selfoss,“ segir Björgvin Jóhannesson, hótelstjóri Hótel Selfoss.