-9.7 C
Selfoss

Anna Guðrún er íþróttamaður Hveragerðis 2024

Vinsælast

Anna Guðrún Halldórsdóttir hefur verið valin íþróttamaður Hveragerðis 2024 fyrir góðan árangur í ólympískum lyftingum. Athöfnin fór fram í Listasafni Árnesinga 5. janúar sl.

Anna Guðrún hefur sett fjölda Íslandsmeta, Evrópumeta og heimsmeta í sínum aldursflokki en hún er núverandi Evrópu- og heimsmethafi í flokki 55-59 ára í 87 og +87 kg flokki auk þess að vera Íslandsmethafi í sömu flokkum. Hún keppti í apríl á miðjarðahafsmóti í Durres í Albaníu þar sem hún varnn gull og var valin Grand master með flest stig reiknuð ásamt því að setja Evrópu- og heimsmet.

Einnig keppti Anna Guðrún á Evrópumeistaramóti í Haugasundi í Noregi í júní þar sem hún vann gull, setti Evrópu- og heimsmet. Þá keppti hún á heimsmeistaramóti í Finnlandi í september þar sem hún vann gull ásamt því að setja Íslands-, Evrópu- og heimsmet.

Anna Guðrún á í dag:

3 heimsmet (hefur sett tíu slík á árinu 2024) allt í flokki 55-59 ára
3 Evrópumet (hefur sett tólf slík á árinu 2024) allt í flokki 55-59 ára
39 Íslandsmet en hefur sett 180 Íslandsmet frá haustinu 2020 í flokkum 35-39, 40-44, 45-49, 50-54 og 55-59 ára

Sex einstaklingar voru tilnefndir sem íþróttamaður Hveragerðis. Voru það eftirfarandi:

Rakel Rós Guðmundsdóttir fyrir góðan árangur í badminton
Kristján Valdimarsson fyrir góðan árangur í blaki
Óliver Þór Þorkelsson fyrir góðan árangur í knattspyrnu
Lúkas Aron Stefánsson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
Anna Guðrún Halldórsdóttir fyrir góðan árangur í ólympískum lyftingum
Eric Máni Guðmundsson fyrir góðan árangur í motocrossi

Íþróttafólkið sem fékk tilnefningu. Anna Guðrún var ekki á staðnum.

Nýjar fréttir