Þrjá föstudaga í röð í desember, þann 6., 13. og 20., var jólamót HSK haldið hjá júdódeildinni. Mótið er innanfélagsmót og fór fram í júdósalnum sem er gamli Sandvíkursalurinn beint á móti Sundhöll Selfoss. Mótið markar lok haustannar hjá júdódeildinni.
6. desember keppti yngsti hópurinn, 6-7 ára börn. Þar voru margir keppendur að taka þátt á sínu fyrsta móti og stóðu sig vel. Keppendur voru nítján talsins, strákar og stelpur. „Gaman var að sjá hvað mikið af foreldrum, ömmum, öfum og systkinum mættu til að fylgjast með. Strákar í unglingaflokki fengu að spreyta sig í að dæma og aðstoða við mótið,“ segir í tilkynningu frá deildinni.
13. desember var komið að 8-10 ára krökkunum. Þar voru keppendur 22 talsins, strákar og stelpur. „Þau hafa öll keppt áður og sáust glæsileg tilþrif, margar flottar glímur,“ segir einnig í tilkynningunni.
19. desember kláraði 11–15 ára hópurinn önnina sína með jólamótinu. Þar voru keppendur tíu talsins, strákar og stelpur. „Í þessum flokki er blanda af krökkum sem hafa verið lengi og hafa mikla reynslu og einnig stelpur sem voru að keppa á sínu fyrsta móti og stóðu sig glæsilega,“ segir deildin að lokum.