-10.8 C
Selfoss

Býður upp á námskeið í módelteikningu og Masterclass í málun

Vinsælast

Í vetur býður Listrými upp á námskeið á sviði myndlistar. Í janúar hefst fyrsta námskeiðið, námskeið í módelteikningu og módelmálun. Það verður haldið helgina 18. og 19. janúar í sal Rauða krossins í Hvergerði.

Fyrri daginn verður teiknað eftir lifandi módeli, bæði með blýanti, kolum og krít. Seinni daginn verður málað eftir módeli, með vatnsleysanlegum litum, t.d. vatnslitum og akríl, á pappír eða léreft. Stefnt er að því að losa um hömlur og vinna frjálslega og persónulega með viðfangsefnið. Verkfæri og pappír verða á staðnum.

Í febrúar verður Guðrún síðan með Masterclass í akríl- og olíumálun þar sem áhersla verður lögð á að skoða efnafræðina og meta hvernig efnið hjálpar hugmyndinni sem unnið er með hverju sinni. Æfing verður í litablöndun og lagskiptri vinnu með akríl og olíu. Möguleikar beggja miðla verða kannaðir og virkjaðir. Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur þegar málað eitthvað en vill verða öruggara í vinnubrögðum og auka við kunnáttu sína við að tengja efnisnotkunina betur hugmyndinni sem unnið er út frá hverju sinni. Unnið er í þremur lotum og áfram heima inn á milli.

Auk þess verða haldin örnámskeið um hin ýmsu svið myndlistarinnar auk lengri námskeiða s.s. úr huga í efni, þar sem hugmyndaþróun er tekin föstum tökum, og portrait- teikningar og málun. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á tryggvadottir.com

Guðrún Arndís Tryggvadóttir er fædd í Reykjavík en hefur búið og starfað á Suðurlandi síðan 2006. Öll námskeiðin nema Módelteikning- og málun verða haldin á vinnustofu hennar á Selfossi. Guðrún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og fór síðan til framhaldsnáms til Parísar og síðan til München þar sem hún hlaut æðstu verðlaun akademíunnar við útskrift. Hún hefur rekið sinn eigin skóla með hléum frá 1993 og kennt bæði í öðrum skólum sem og á háskólastigi. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, bæði fyrir list sína og nýsköpun á sviði umhverfisfræðslu, en hún tekur einnig að sér að halda fræðslufyrirlestra um myndlist fyrir félög og fyrirtæki. Félag hennar Listrými er bæði útgáfu- og fræðslufélag og stéttarfélög hafa styrkt félaga sína til að taka þátt í námskeiðum hennar.

Allar nánari upplýsingar um námskeið Listrýmis veitir Guðrún í síma 863-5490 og á gudrun@tryggvadottir.com

Nýjar fréttir