1.7 C
Selfoss

Lionsklúbburinn Embla afhenti Dagdvölinni Árbliki og Vinaminni gjafir

Vinsælast

Lionsklúbburinn Embla afhenti Dagdvölinni Árbliki og Vinaminni gjafir á dögunum. Sigurbjörg Hermundsdóttir afhenti Bylgju Dögg Kristjándóttur, forstöðumanni, og Fanneyju Gunnarsdóttur, sem er aðstoðarmaður Bylgju Daggar, tvo Terabath-vaxpotta og fjóra Beurer-fótverma með nuddi sem deilist á Dagdvölina Árblik og Vinaminni, dagdvöl fyrir einstaklinga með minnissjúkdóma. Sigurbjörg sagði að nú þyrfti engum að vera kalt á höndum eða fótum. Bylgja Dögg þakkaði fyrir og starfsfólk og heimilisfólk klöppuðu fyrir þessum gjöfum. Síðan áttum við Emblur góða stund með fólkinu á Árbliki. Við nutum þess að tala við það og sjá hvað þar fer fram flott starf sem er unnið á þessum stöðum. Á þessum fallega degi voru allir svo glaðir og hlýtt í hjarta.

Styrktarsjóður Lk Emblu.

Nýjar fréttir