5 C
Selfoss

Vatn flæddi yfir Hring­veg undir Eyja­fjöll­um

Vinsælast

Það gerði slíka úrhellisrigningu undir Eyjafjöllum á mánudag að heimafólk man vart eftir öðru eins. Vegagerðin var kölluð út til aðstoðar um miðja nótt þegar það byrjaði að flæða yfir hringveginn á nokkrum stöðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Ljósmynd: Vegagerðin.

Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Vík, segir að vatn hafi flætt yfir Hringveginn á nokkrum stöðum. Grípa varð til þess ráðs að stýra umferðinni svo fólk kæmist leiðar sinnar þrátt fyrir flóð og erfiðar aðstæður.

„Við hjá Vegagerðinni fengum fyrst fréttir af því aðfaranótt mánudagsins að flætt hefði yfir veginn við Bakkakotsá með þeim afleiðingum að lögreglubíll flaut upp og endaði utan vegar. Kallaður var út mannskapur og við fórum þangað að kanna aðstæður. Einnig var ástandið við Kaldaklifsá skoðað en þar flæddi yfir varnargarða og vatnsflaumurinn braut sér leið yfir Hringveginn. Vestar, að Holtsá, rofnaði varnargarðurinn svo vatn flæddi yfir Hringveginn með þeim afleiðingum að afleggjarinn heim að Ásólfsskála lokaðist. Vegagerðin hafði samband við verktaka sem fór þá strax um nóttina í að laga varnargarðinn,“ segir Ágúst.

Umferð var stýrt um veginn.
Ljósmynd: Vegagerðin.

Lögreglan aðstoðaði fólk við Skógafoss, þar sem aðstæður voru afar slæmar vegna vatnavaxta, en þar var allt umflotið.

„Björgunarsveitir voru líka kallaðar út og við hjá Vegagerðinni fengum mannskap til að hjálpa okkur við að stýra umferð yfir kaflana þar sem flæddi yfir veginn. Litlar skemmdir urðu á Hringveginum en það er eitthvað um kantskemmdir og er unnið að viðgerð. Einhverjar skemmdir urðu á tengivegum og er verið að gera við þá í þessum töluðu orðum,“ segir Ágúst.

Eitthvað er um kantskemmdir en unnið er að viðgerðum.
Ljósmynd: Vegagerðin.

Nýjar fréttir