Miklir vatnavextir og leysingar voru á Suðurlandi í gær og nótt og þykir líklegt að það sé valdur að bilun sem kom upp og olli rafmagnsleysi í Vík og Mýrdal um klukkan hálf 3 í nótt.
Bilunin er í Víkurstreng sem liggur undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli. Starfsfólk RARIK var sent af stað til Víkur í nótt en erfið færð var á svæðinu og vegir lokaðir. Samráð var haft við björgunarsveitir áður en farið var inn á lokunarsvæðið. Ekki hefur gengið sem skyldi að keyra upp varaaflsvélar sem þegar eru á svæðinu. Efri byggð Víkur er með rafmagn sem kemur frá varatenginu frá Klaustri en erfiðara hefur gengið að koma stöðugu rafmagni á neðri byggðina og Mýrdalinn.
Von er á öflugum varaaflsvélum frá Landsneti til Víkur um hádegi og búist er við að geta komið tryggu rafmagni á hjá fleiri viðskiptavinum um leið og búið er að tengja þær. Slík tenging tekur um 30-60 mínútur eftir að vélin er komin á staðinn.
Bilanaleit á Víkurstreng hefur reynst erfið vegna veðurs og vatnavaxta en þó er búið að þrengja það svæði sem bilanaleitin fer fram á og er það nú á u.þ.b. 12 km kafla frá Holti.
Vík og Mýrdalur verða keyrð á varaafli þar til búið er að gera við bilunina. Viðgerðin gæti tekið nokkra daga þar sem skilyrði eru erfið en endanleg tímaáætlun mun verða ljósari þegar bilunin finnst. Það tekur einnig tíma að koma efni og mannskap á staðinn og RARIK þarf einnig að huga að öryggi eigin starfsfólks í þessum aðstæðum.
RARIK vill biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur viðskiptavinum þeirra í Vík og Mýrdal og er biðlað til þeirra að fara sparlega með rafmagn meðan varaaflskeyrsla stendur yfir, t.d. sleppa því að hlaða rafbíla eða nota orkufrek tæki og slökkva á og jafnvel taka úr sambandi rafmagnstæki til að minnka álag á kerfið.