Hörmungarsaga þessi hófst með leigusamningi sem meirihluti O-listans og Framsóknar í Hveragerði gerði við Fasteignafélagið Eik (Eik) og verktakafyrirtækið Hrafnshóll ehf (Hrafnshóll) síðasta vor. Fulltrúar D-listans vöruðu við að gera þennan leigusamning, enda er hann gífurlega óhagstæður fyrir bæinn og lögðu þess í stað til að fylgja fyrri áætlunum um að byggja nýjan leikskóla í Kambalandi. Eftir að öllum tilboðum sem bárust í viðbygginguna var hafnað var farið í svonefndar samkeppnisviðræður við bjóðendur sem endaði með því að gerður var fyrrnefndur leigusamningur við Eik sem svo samdi við lægstbjóðandann Hrafnshól um að byggja viðbygginguna. Leigusamningurinn gerir ráð fyrir að bærinn leigi viðbyggingu við leikskólann Óskaland til allt að 40 ára af Eik á kjörum sem eru hærri en þekkist á hinum almenna markaði, með möguleika á að kaupa viðbygginguna eftir 7 ár. Í þessum sama leigusamningi er viðauki sem gefur Eik forkaupsrétt að núverandi leikskólahúsnæði Óskalands en einnig skuldbindur samningurinn Hveragerðisbæ til að fara í viðræður við Eik um kaup Eikar á núverandi leikskólahúsnæði til að leigja bænum áfram. Hér er sem sagt um að ræða eign sem Hveragerðisbær á að fullu og Eik vill kaupa af bænum til að leigja bænum aftur til baka.
Áhyggjur af verktakanum
Um samninginn hefur áður verið ritað og fjallað í fjölmiðlum en nú hefur hörmungarsagan haldið áfram. Fulltrúar D-listans hafa frá því að umfjöllun um Hrafnshól kom í fjölmiðla í vor lýst yfir áhyggjum af orðspori verktakans og að það kynni að hafa áhrif á byggingu þessarar viðbyggingar við Óskaland. Áhyggjur D-listans síðasta vor voru á rökum reistar enda kom fram í frétt Morgunblaðsins í mars að í nýjum leikskóla sem Hrafnshóll væri að byggja í Reykjanesbæ væru komnar upp rakaskemmdir og mygla og seinkun yrði á afhendingu leikskólans sökum þessa frá mars og þar til í ágúst. Þessi leikskóli hefur enn ekki opnað en stefnt hafði verið að því að opna hann í október og nú er desember genginn í garð.
Þá birtist í maí síðastliðnum löng frétt í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins þar sem fjallað var um nýbyggingar sama verktaka austur á fjörðum í nokkrum þéttbýlum sem stæðu ókláraðar svo mánuðum skipti og lægju þar undir skemmdum vegna vinnubragða fyrirtækisins. Þar hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun rift samningum sínum við Hrafnshól og fengið annan verktaka til að klára verkin. Þá hefur fulltrúum D-listans verið bent á fleiri staði á landinu þar sem fyrrnefndur verktaki hefur verið að störfum með sömu sögu.
Lekavandamál, ummerki um myglu og verkstopp
Nú hefur Hrafnshóll unnið að viðbyggingunni við Óskaland frá því í vor síðastliðnum. Í ágúst komu upp alvarlegir lekar í lokaðri en ókláraðri viðbyggingunni og í kjölfarið var ráðist í aðgerðir sem áttu að loka fyrir þá leka. Það dugði því miður ekki til, því núna í nóvember kom upp enn eitt lekavandamálið. Í síðustu verkfundargerð frá 21. nóvember kom í ljós að Hrafnshóll fékk í lok september í hendurnar skýrslu frá framleiðendum timbureininganna sem viðbyggingin er reist úr. Í skýrslunni kom fram að ummerki um myglu hafði fundist í viðbyggingunni. Þessa skýrslu hafði Hrafnshóll haldið að sér og ekki látið verkkaupa, Eik, fá í hendurnar né Hveragerðisbæ þar til 15. nóvember. Þá kom einnig fram í sömu verkfundargerð að píparar væru komnir í verkstopp og frést hefur af öðrum iðnaðarmönnum sem ekki hafa fengið greitt fyrir sína vinnu frá því í ágúst.
Ítrekað lýst yfir áhyggjum
Fulltrúar D-listans hafa ítrekað sett fram athugasemdir og viðvaranir bæði í orði og í bókunum á fundum um samninginn, verktímann og varðandi verktakann. D-listinn hefur gagnrýnt þá tímalínu sem var gefin upp og meirihlutinn hefur staðfastlega haldið fram að myndi haldast, þvert gegn aðvörunum sem komu fram í verkfundargerðum og augljósri stöðu verksins. Meirihluti O-lista og Framsóknar hefur þannig staðfastlega haldið því fram að viðbyggingin yrði tilbúin 15. desember 2024 allt þar til á síðasta fundi bæjarráðs í nóvember þegar ný tímaáætlun lá fyrir, að viðbyggingin yrði tilbúin 17. janúar 2025. Eftirlitsmaður Hveragerðisbæjar með verkinu bendir hins vegar á í síðustu verkfundargerð að það sé full mikil bjartsýni að halda því fram að leikskólinn verði tilbúinn 17. janúar 2025. Þegar hafa verið ráðnir starfsmenn, hátt í 16 talsins, og meirihlutinn hefur gefið barnafjölskyldum í Hveragerði sem áttu von á leikskólaplássi í desember upp falskar vonir. Þessar fjölskyldur, sem margar hverjar höfðu gert ráð fyrir því að barnið þeirra kæmist inn á leikskóla 15. desember, sitja nú uppi með þá staðreynd að barnið mun ekki komast á leikskóla fyrr en einhvern tímann eftir miðjan janúar 2025, ef sú tímaáætlun skyldi standast. Af þessu hafa fulltrúar D-listans verulegar áhyggjur.
Lausnirnar
Fulltrúar D-listans hafa lagt það til nokkrum sinnum að samningi Hveragerðisbæjar við Eik og Hrafnshól yrði rift ásamt því að viðræðum um kaup Eikar á leikskólanum Óskalandi verði hafnað. Þá hafa fulltrúar D-listans einnig lagt til að bæjarstjóra yrði falið að ganga til samninga um kaup á ókláraðri viðbyggingu við Óskaland, með fyrirvara um ástandsskoðun á húsnæðinu og að fengnir yrðu aðrir verktakar í að klára viðbygginguna. Meirihlutinn hefur ávallt hafnað þessum tillögum D-listans.
Þegar allt er komið í hnút þá þarf að hugsa í lausnum og því lagði D-listinn til á bæjarráðsfundi í lok nóvember að bæjarstjóra yrði falið í samstarfi við leikskólastjóra leikskólans Óskalands, deildarstjóra leikskólans og forstöðumann Bungubrekku að finna tímabundna ráðstöfun þannig að hægt sé að taka inn elstu börnin á biðlistum á leikskóla. Ein hugmynd D-listans væri að elstu börn á Óskalandi færðust til og gætu verið fyrir hádegi í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Bungubrekku sem stendur tómt fyrir hádegi og eftir hádegi yrði ýmiss konar dagskrá í boði. Þessi ráðstöfun yrði að sjálfsögðu einnig að vera unnin í nánu samstarfi við foreldra barnanna. Svipað fyrirkomulag reyndist vel í lok árs 2021 meðan verið var að bæta við tveimur færanlegum leikskóladeildum við leikskólann Óskaland. Þá myndi þessi tillaga leysa biðlistavandann og jafnframt gera það að verkum að þeir leikskólakennarar sem hafa verið ráðnir inn og áttu að hefja störf um eða eftir 15. desember haldi störfum sínum þar til viðbyggingin opnar. Þessa tillögu D-listans samþykkti meirihlutinn með smávægilegum breytingum.
Það er ljóst að meirihlutinn er meðvitaður um þá hættulegu þróun sem verið hefur á byggingu viðbyggingarinnar eftir allt það sem á undan er gengið og tók bæjarráð meðal annars undir bókun bæjarstjóra í síðustu verkfundargerð sem lét sérstaklega bóka að Hveragerðisbær geri skýra kröfu um að tryggt sé og ábyrgst að húsið verði vatnshelt og myglulaust við afhendingu. Eitthvað sem ætti ekki að þurfa að nefna við kaup á nýju húsnæði.
Friðrik Sigurbjörnsson,
Oddviti D-listans í Hveragerði.