6.7 C
Selfoss

Hættulegar aðstæður tefja viðgerð

Vinsælast

Bilanaleit á Víkurstreng hefur staðið yfir frá því snemma í morgun. Nú rétt eftir hádegi kom í ljós að líklegast er bilunin staðsett í strengnum þar sem hann er plægður undir Skógá. Áin flæddi yfir bakka sína í vatnsveðri og leysingum í nótt og í henni er gífurlega mikið vatn. Ólíklegt þykir að vatnsborð árinnar lækki nægilega í dag til að hægt sé að hefja viðgerð. Þessi staðsetning er afar erfið og aðstæður hættulegar og mun það tefja viðgerð þar sem ekki þykir forsvaranlegt að senda framkvæmdaflokka til að lagfæra strenginn nærri ánni eða undir brúnni yfir hana. Allir okkar verktakar og starfsfólk á svæðinu er tilbúið að mæta til viðgerðar um leið og færi gefst.

Ljóst er að keyra þarf varaafl í Vík og Mýrdal í nokkurn tíma. Von er á öflugum varaaflsvélum til Víkur í kringum klukkan 15 sem er seinna en áður hafði verið gefið út. Varaaflsvél frá RARIK er einnig á leiðinni frá Stöðvarfirði. Minni varaaflsvél RARIK sem staðsett er í Vík er í gangi og svo vel vildi til að færanleg varaaflsvél okkar var þegar staðsett í bænum og hefur verið gangsett. Varatenging frá Klaustri var einnig virkjuð og hefur hún náð að halda rafmagni inni á hluta bæjarins. Fleiri viðskiptavinir RARIK eru nú með rafmagn en voru í morgun en enn er hluti Víkur og Mýrdals án rafmagns.

Nýjar fréttir