Um miðjan október síðastliðinn fengu nemendur 7., 8., 9. og 10. bekkjar Víkurskóla í Vík í Mýrdal „öðruvísi“ skemmtilega kennslustund í ritlist og skapandi skrifum. Skrifum sem eru öðruvísi að því leyti að þeir setja sína hugleiðingu fram í það knappa form sem sjónpróf er. Þemað var friður, vinátta, og samkennd. Þetta er töluverð áskorun fyrir bæði unglinga og fullorðna þar sem stafafjöldi hvers sjónprófs þarf að vera um það bil 80 bókstafir og að hámarki 86 svo lögun upprunalega sjónprófsins haldi sér.
Þetta er þolinmæðisverk og verður að framkvæma af mikilli rósemi og einbeitningu. Þar stóð unga kynslóðin sig alveg einstaklega vel. Nemendur hlustuðu af mikilli athygli á kennarann og það var greinilegt að þeim fannst gaman að glíma við verkefnið. Svavar Guðmundsson var kennari á vinnustofunni en hann er lögblindur; lögblinda er skilgreind sjón sem er minni en 10%. Í lok vinnustofunnar hafði unga fólkið mikinn áhuga á að vita hvernig hann sæi lífið og liti þess, og hvernig það væri að vera með svo litla sjón Sköpuðust góðar og upplýsandi umræður um blindu og sjónskerðingu.
Sjónprófið sem er notað sem grunnur er upprunalega sjónprófið frá árinu 1851 eftir Þjóðverja og nefnist Scnellen test. Það er víða enn í dag notað sem sjóntæknigrunnur til að meta og mæla sjón fólks. Lögun og útlit sjónprófsins er engin tilviljun, allt úthugsað í samspili stærðar bókstafa og fjarlægðar þess sem les. Svavar hefur gefið út þrjár bækur sem innihalda hugleiðingar og heilræði sem sett eru fram í því knappa formi sem sjónpróf er. Inni á vef Menntamálastofnunar, nú Miðstöð Menntunar og skólaþjónustu, má finna kennsluleiðbeiningar og hugmyndir um hvernig nota má bækurnar á fjölbreyttan hátt í skapandi skólastarfi.
Nemendurnir með aðstoð íslenskukennara síns bjuggu til sína hugleiðingu um þemað. Hún varð að innihalda 80-86 bókstafi eins og fyrr segir. Ásamt því eru nokkrar aðrar reglur sem ber að varast sem Svavar útskýrði fyrir nemendum áður en þeir byrjuðu, t.d. hvernig á að telja stafina í síðustu þremur línunum o.fl. Nemendur fengu sent skapalón í tölvu sem Svavar hefur hannað til að setja stafina rétt inn í, þannig að hugleiðingin komi uppsett eins og sjónpróf. Nú var komið að því að setja hugleiðinguna inn í sjónprófsformið sem nemendur höfðu skrifað deginum áður. Það er skemmst frá að segja að unga fólkið stóð sig stórkostlega og á tímabili mátti varla heyra saumnál detta svo áhugasöm voru þau að koma lífsspeki sinni um þemað í sjónprófsformið. Nú eru merkingarþrungin sjónpróf um allan Mýrdalinn og ekki síst í grunnskólanum um F R I Ð, V I N Á T T U O G S A M K E N N D.
Íslensku listaverkin eftir unga fólkið voru síðan afhjúpuð á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sem jafnframt er kaffihúsakvöld skólans, fyrir foreldrum, kennurum og öðrum gestum til yndislesturs. Þess skal getið að verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Í S L E N S K A E R O K K A R M Á L O G D Ý R M Æ T U R A R F U R.