-6.2 C
Selfoss

Fossvélar og Landsvirkjun semja um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar

Vinsælast

Landsvirkjun og Fossvélar ehf. á Selfossi hafa samið um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar. Fossvélar munu m.a. leggja veg að væntanlegu stöðvarhúsi og undirbúa plan undir vinnubúðir. Í þessum verkum felst upphaf eiginlegra virkjunarframkvæmda á svæðinu, en öll leyfi voru í höfn í lok október.

Alls bárust 6 tilboð í verkið og áttu Fossvélar lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á 1,2 milljarða króna eða 74% af kostnaðaráætlun. Hæsta tilboð nam 105% af kostnaðaráætlun.

Í samningnum felst að Fossvélar leggja 3 km langan aðkomuveg inn á virkjunarsvæði Hvammsvirkjunar, þ.e. frá endurbættum Hvammsvegi sem lokið var við fyrr á árinu og að væntanlegu stöðvarhúsi. Efnið til vegagerðarinnar verður sótt í frárennslisskurð virkjunarinnar.

Þá munu Fossvélar einnig undirbúa vinnubúðaplan á jörð Landsvirkjunar, Hvammi 3, en þegar framkvæmdir standa sem hæst árið 2027 munu um 400 manns starfa þar.

Loks felst svo í samningnum að hefja framkvæmdir við fiskistiga. Fiskistigi og seiðafleyta greiða för göngufisks milli Hagalóns og árfarvegar neðan stíflu.

Fossvélar hefjast handa nú í desember, en áætluð verklok eru í nóvember á næsta ári.

Landsvirkjun gerir ríkar kröfur til samstarfsfyrirtækja um að draga úr kolefnisspori sínu og aðstoðar við það. Megintæki við ákvarðanatöku er innra kolefnisverð. Það þýðir að losun – eða öllu heldur framtíðarkostnaður vegna losunar – er reiknuð inn í allar stærri fjárhagsákvarðanir, allt frá innkaupum á rekstrarvörum og yfir í val á nýjum virkjanakostum. Kolefniskostnaður vegna framkvæmda Fossvéla er áætlaður 60 milljónir kr.

„Við hjá Fossvélum höfum alltaf leyst öll okkar verkefni af hendi með virðingu fyrir náttúrunni efst í huga. Tækin okkar til efnisvinnslu ganga fyrir rafmagni og við fögnum því að geta nýtt þau í verk sem marka upphaf eiginlegra virkjanaframkvæmda,” segir Elísabet Ebba Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Fossvéla.

Nýjar fréttir