3.9 C
Selfoss

Kona, vertu ekki fyrir!

Við, íbúar í Ölfusi, stöndum á tímamótum þessi misserin. Okkur gefst nú kostur á að kjósa um hvort við viljum bjóða hingað umdeildum þýskum sementsrisa sem verður án efa stefnumótandi ákvörðun í atvinnumálum sveitarfélagsins. Umræðan í kringum málið hefur verið lífleg og augljóst að mikið liggur við enda er um að ræða starfsemi sem mun hafa áhrif á lífsgæði, náttúru og umhverfi okkar til framtíðar.

Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með aðdraganda fyrirhugaðrar íbúakosningar um verkefnið. Boðað hefur verið til íbúakosningar frá 25. nóvember til 9. desember, án þess að áhrif grjótmölunar á nærliggjandi starfsemi liggi fyrir, þó að sú ástæða hafi verið gefin fyrir frestum íbúakosningar í vor. Kynning verkefnisins hefur að mestu verið í höndum fyrirtækisins sjálfs, sem vart getur talist hlutlaust, en meirihluti bæjarstjórnar ekki talið það í sínum verkahring að taka þátt í kynningu máls eða miðlun upplýsinga til bæjarbúa er varðar verkefnið, kosti þess og galla. Það er að mati undirritaðra með ólíkindum að bæjarstjóri og meirihluti bæjarstjórnar telji það ekki í sínum verkahring að standa vörð um hagsmuni íbúa með því að miðla upplýsingum um ólíkar hliðar á svo stóru verkefni, því stærsta sem sóst hefur eftir að koma hingað. Sér í lagi í ljósi þess að þeir sérfræðingar sem fjallað hafa um áformin auk forsvarsmanna nærliggjandi landeldis hafa af því stórar áhyggjur.

En þar með er ekki öll sagan sögð. Í öllu þessu ferli hefur sá bæjarfulltrúi sem hvað mest hefur látið sig málið varða, lagt sig fram um að miðla upplýsingum frá sérfræðingum, gagnrýna og upplýsa íbúa, mátt þola linnulausar árásir, tilraunir til þöggunar og svívirðinga. Nýjasta dæmið átti sér stað á íbúafundi nýverið þar sem örvæntingarfullur karl, sem kominn var út í horn, sá sig knúinn til að hreinlega segja henni að þegja. Þessi framkoma var ekki ósvipuð þeirri sem ákveðnir fulltrúar meirihluta, auk bæjarstjóra, hafa tamið sér gagnvart umræddum bæjarfulltrúa minnihlutans allt þetta kjörtímabil. Umræddur bæjarfulltrúi hefur það eitt sér til saka unnið að gera það sem hún var lýðræðislega kjörin til að gera, að standa vörð um hagsmuni íbúa af hugsjón og eftir sinni bestu sannfæringu. Það er okkur sem hér skrifum til efs að karl hefði hlotið sömu meðferð og þá sem hún hefur mátt þola allt þetta kjörtímabil.

Meirihluta bæjarstjórnar hefur verið tíðrætt um „að vanda umræðuna“ og „bera virðingu“. Við getum tekið undir það og þætti óskandi að hljóð og mynd færu saman hjá bæjarstjóra og meirihlutanum hvað það varðar. Margur heldur mig sig og það hefur verið kómískt á köflum að sjá menn stilla sér upp í hlutverki fórnarlambs, þá sömu og staðið hafa í sameiginlegum og linnulausum árásum á eina konu.

Að endingu viljum við, undirritaðar, þakka Ásu Berglindi fyrir ómetanlegt starf í þágu okkar íbúa og fyrir þá umræðu sem hún hefur stuðlað að í aðdraganda stærstu ákvörðunar sem við höfum þurft að taka fyrir sveitarfélagið okkar. Við göngum upplýstari og undirbúnari til kosninga fyrir vikið.

Elín Björg Jónsdóttir,

Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,

Hrafnhildur Lilja Harðardóttir.

Nýjar fréttir