3.9 C
Selfoss

Hvaða hlekkur ert þú í keðjunni?

Vinsælast

Samvinna fyrir börnin okkar

Farsældarlögin eru stórt framfaraskref þegar kemur að því að tryggja velferð barna á Íslandi. Lögin byggja á þeirri grundvallarforsendu að allir sem vinna með og fyrir börn – hvort sem það eru skólar, heimili, frístundastarf, heilbrigðisþjónusta eða félagsþjónusta – vinni saman að farsæld þeirra. Markmiðið er að koma auga á og bregðast við aðstæðum barna áður en vandamál verða of flókin.

Þetta kallar á samstillt átak allra hlekkja farsældarkeðjunnar – frá heimilum til skóla, frístundastarfs og samfélagsins í heild. Í þessu samhengi gegnir forvarnarstarf lykilhlutverki. Með því að vinna saman að forvörnum getum við tryggt börnum okkar öruggara og heilbrigðara umhverfi til að vaxa og þroskast.

Íþróttir og frístundastarf

Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi veitir börnum tækifæri til að efla félagsleg tengsl og þróa hæfileika sína. Þjálfarar og leiðbeinendur gegna þar lykilhlutverki, því þeim er ætlað að veita stuðning og leiðsögn á uppbyggilegan hátt þar sem hæfileikar hvers og eins fá að njóta sín.

Farsældarlögin leggja áherslu á að frístundastarf sé mikilvægt til að stuðla að velferð barna. Með því að leggja rækt við íþrótta- og frístundastarf byggjum við sterkara, öruggara og heilbrigðara samfélag og drögum úr áhættuhegðun.

Foreldrar og heimilin

Grunnur að farsælli framtíð barna hefst heima. Opinská samskipti, byggð á trausti, eru undirstaða heilbrigðs fjölskyldulífs. Á heimilinu mótast viðhorf, gildi og hegðun sem verða ómetanlegt veganesti í lífinu. Börn sem finna að þau geta rætt við foreldra sína um lífsins áskoranir eru ólíklegri til að leita í óæskilegan félagsskap.

Farsældarlögin byggja á þeirri forsendu að heimilin séu grundvöllur farsældar. Með því að tryggja að fjölskyldur fái nauðsynlegan stuðning og greiðan aðgang að þjónustu er hægt að styrkja umhverfið sem börn þurfa til að vaxa og dafna. Foreldrar hafa lykilhlutverk í forvörnum; með því að vera fyrirmyndir og sýna ábyrgð og kærleika styrkjum við börnin okkar og stuðlum að því að þau tileinki sér jákvæð gildi.

Menntastofnanir

Skólar eru meira en bara kennslustofur, þeir eru vettvangur félags- og tilfinningaþroska og mótunar sjálfstrausts. Starfsfólk skólanna er oft fyrst til að taka eftir ef börn eiga í erfiðleikum og hefur mikilvægu hlutverki að gegna í að styðja þau.

Farsældarlögin, sem tryggja aukna samþættingu þjónustu við börn, auðvelda skólastarfi að bregðast snemma við þörfum þeirra sem þurfa á stuðningi að halda. Regluleg samskipti milli heimila og skóla stuðla að því að allir vinni saman að farsæld barna.

Hlutverk samfélagsins

Samfélagið er sterkur hlekkur í keðju forvarna. Þegar ólíkir aðilar, skólar, íþróttafélög, heilbrigðisþjónusta og fjölskyldur taka höndum saman, sköpum við öruggara og heilbrigðara umhverfi fyrir börn.

Farsældarlögin hafa lagt traustan grunn að þessari samvinnu. Með samþættingu þjónustu, sem lögin kveða á um, erum við betur í stakk búin til að mæta þörfum barna strax og tryggja að þau fái stuðning í uppbyggilegu og öruggu umhverfi. Forvarnir snúast um að deila ábyrgð og vinna að sameiginlegu markmiði: að tryggja að börn fái tækifæri til að vaxa og blómstra.

Við höfum öll mikilvægu hlutverki að gegna í forvörnum, sem foreldrar, kennarar, leiðbeinendur eða nágrannar. Farsældarlögin eru aðeins fyrsta skrefið á vegferð að betri framtíð fyrir börnin okkar. Með því að setja X við B laugardaginn 30. nóvember styðjum við áframhaldandi vinnu sem tryggir farsæld barna og styrkir samfélagið allt.

Ellý Tómasdóttir,

forvarnarfulltrúi, bæjarfulltrúi og frambjóðandi Framsóknar í Suðurkjördæmi.

Nýjar fréttir