-1.1 C
Selfoss

Djassaðir jólatónleikar Jórukórsins

Vinsælast

Miðvikudaginn 4. desember stendur mikið til. Fyrsti í aðventu nýliðinn og Jórukórinn er með jólatónleika í Selfosskirkju. Tónleikar verða kl. 20:30 og sala miða hefur farið fram úr okkar björtustu vonum því uppselt er á tónleikana. Aukatónleikar verða kl. 18:30 sama dag og enn eru til miðar á þá tónleika. Fyrri tónleikarnir henta e.t.v. betur fyrir þá sem koma lengra að eða mjög unga tónleikagesti, með mjúkri stemmingu þar sem er sérstaklega velkomið að taka með sér bangsa til að hlusta líka. Miðasala fer fram á heimasíðu kórsins www.jorukorinn.is og mega tónleikagestir búast við notalegri en skemmtilegri stemningu með léttu gríni og glensi eins og kórnum einum er lagið.

Síðasti vetur var kórnum góður, uppselt var á jólatónleikana í fyrra, þegar kórinn átti notalega jólastund með tónleikagestum. Kórinn hélt Kvennakvöld á Risinu 15. febrúar þar sem einnig var fullt út úr dyrum og stemningin einstaklega skemmtileg. Kórveturinn kláraðist á mjög svo skemmtilegu verkefni. Kórinn ásamt einvala liði hljóðfæraleikara kom sér fyrir á tónleikastaðnum Sviðinu þann 2. maí og var það, eftir því sem við best vitum, fjölmennasti hópur tónlistarmanna sem hefur komið fram þar.

Kórinn hóf að vanda störf aftur í haust en hann samanstendur af rúmlega 50 ungum og hressum söngkonum úr Árnessýslu sem æfa saman vikulega og koma konur alla jafnan endurnærðar út af æfingum. Jólalögin settu svip sinn á fyrstu æfingarnar enda var stefnan strax sett á að hafa djassað yfirbragð á dagskránni. Kórinn býr svo vel að því að hafa frábæra kórstýru, Unni Birnu Björnsdóttur, sem eflir okkur allar í að verða betri (kór)konur. Fyrir utan það að vera frábær kórstýra og tónlistarkona þá útsetur hún líka lög fyrir kórinn og gerir það sérstaklega vel. Kórinn býr einnig svo vel að því að eiga góðan textahöfund í sínum röðum, Helgu Guðrúnu Lárusdóttur, og höfum við áður sungið þekkt lög við texta frá henni. Þegar Unnur Birna og Helga Guðrún sameinast í sköpunargáfunni verður útkoman stórkostleg og verða lög á dagskrá tónleikanna í nýjum útsetningum með nýjum textum, eitthvað sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Góður kór er enn betri með góðu bandi og að þessu sinni mun kórinn njóta aðstoðar frá einstökum tónlistarmönnum. Pálmi Sigurhjartarson verður á píanói, Dagný Halla Björnsdóttir á kontrabassa og Skúli Gíslason á trommum. Auk þess sem kórinn syngur í heild sinni þá koma einnig fram einsöngvarar úr röðum kórsins ásamt leynigestum. Kórinn átti góðan æfingadag laugardaginn 16. nóvember á Stað á Eyrarbakka, þar sem lögin á dagskránni voru fínpússuð til að tryggja okkar allra besta flutning fyrir tónleikagesti. Mynd- og hljóðbrot frá æfingadeginum, og starfi kórsins, er að finna á samfélagsmiðlum kórsins og hvetjum við áhugasama til að fylgja kórnum þar ásamt því að skella sér á heimasíðu kórsins og tryggja sér miða á jólatónleikana þann 4. desember, hvort sem er kl 18:00 eða kl 20:30 (aðeins örfáir miðar eftir á seinni tónleikana).

Fyrir hönd Jórukórsins,

Guðrún Lind.

Nýjar fréttir