Karl Gauti Hjaltason er oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann kom í spjall og ræddi stefnumálin og líf sitt utan kosningabaráttunnar.
Á rúntinum eru nýir viðtalsþættir á DFS TV. Elín Hrönn, ritstjóri Dagskrárinnar, fer með áhugaverða einstaklinga af Suðurlandi á rúntinn og spjallar við þá á léttu nótunum.
Í fyrstu seríu þáttanna er frambjóðendum Suðurkjördæmis í komandi Alþingiskosningum boðið á rúntinn. Farið verður yfir stefnumálin ásamt því að kynnast hverjum frambjóðanda betur.