6.1 C
Selfoss

Hrönn tekur við ritstjórastöðu Dagskrárinnar

Vinsælast

Elín Hrönn Jónsdóttir hefur tekið við stöðu ritstjóra hjá Dagskránni, fréttablaði Suðurlands, og DFS.is. Hrönn, eins og hún er alltaf kölluð, hóf störf hjá Dagskránni í ágúst á þessu ári og hefur á þeim tíma sinnt blaðamennsku ásamt því að aðstoða við uppsetningu blaðsins og ýmsum tilfallandi verkefnum hjá Prentmeti Odda. Hrönn tekur við af Björgvini Rúnari Valentínussyni sem hefur ritstýrt blaðinu undanfarna mánuði. Hann kemur því til með að stíga til hliðar og halda áfram að sinna starfi sínu sem útibússtjóri Prentmets Odda á Selfossi, rekstraraðila Dagskrárinnar ásamt því að vera blaðamaður hjá Dagskránni.

Það er margt spennandi framundan hjá Dagskránni og fréttavef blaðsins, DFS.is. Má þar nefna nýjan viðtalsþátt á DFS TV sem fer í loftið fyrir kosningar.

Nýjar fréttir