0 C
Selfoss

Samfylkingin býður til opins kaffifundar á Selfossi

Vinsælast

Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður til opins kaffifundar á Selfossi laugardaginn 2. nóvember við Eyraveg 15, húsið opnar klukkan 10:00. Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar, þau Víðir Reynisson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Arna Ír Gunnarsdóttir, taka á móti gestum og ræða málefni dagsins. Þau vilja hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar fyrir framtíð Íslands.

„Þessi viðburður er kjörið tækifæri fyrir íbúa Suðurkjördæmis til að kynnast frambjóðendunum og þeim stefnumálum sem Samfylkingin hefur lagt mikla vinnu í á undanförnum tveimur árum. Lögð verður sérstök áhersla á málefni sem snerta líf og framtíð fólks í Suðurkjördæmi og hvernig Samfylkingin hyggst vinna að sterkari, sjálfbærari og sanngjarnari framtíð fyrir landið allt,“ segir í tilkynningu frá flokknum.

Nýjar fréttir