-9.8 C
Selfoss

Iris Kramer Quartet í Tónlistarskóla Árnesinga

Vinsælast

Í kvöld fara fram tónleikar með nýstofnuðum kvartett frá Þýskalandi, Iris Kramer Quartet, í sal Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9.

Iris Kramer er mikill Íslandsvinur sem hefur m.a. búið og starfað sem tónlistarkennari í Bolungarvík.

Iris Kramer, trompetleikari og tónskáld, er Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hún bjó og starfaði við kennslu og spilamennsku á Vestfjörðum í nokkur ár og ferðast um landið á hverju ári. Hún hefur komið víða við á sínum tónlistarferli og stofnaði meðal annars fyrsta bigband Þýskalands eingöngu skipað konum. Hún stofnaði á sínum tíma fyrsta bigband eingöngu skipað konum en á síðari árum hefur hún sinnt tónsmíðum í auknum mæli og það var á viðburði sem helgaður var konum í jazztónlist sem Henriette Thorunn bassaleikari, nýútskrifuð úr jazzdeild tónlistarháskólans í Frankfurt, kynntist tónlist Irisar.

Upp úr því var stofnaður kvartett sem hélt fyrstu tónleikana í Hamborg vorið 2023 og nú eru fjöldi spennandi verkefna framundan. Tónlistin er létt og leikandi sveifla undir áhrifum frá íslenskri náttúru, veðurfari og menningu. Kvartettinn flytur að mestu frumsamið efni en einnig íslenska tónlist.

Sérstakur gestur á tónleikunum er Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona sem er Sunnlendingum að góðu kunn, hóf tónlistarnám sitt við T.Á. og kenndi þar um árabil. Þær Iris hafa áður starfað saman í Þýskalandi og er hluti efniskrárinnar úr sameiginlegri smiðju þeirra.

Tónleikarnir eru styrktir af þýska sendiráðinu á Íslandi, Íslendingafélaginu í Hamborg og Jazzbüro Baden Württemberg.

Fram koma:
Iris Kramer, trompet, Flügelhorn, söngur
Hlín Pétursdóttir Behrens, söngur
Henriette Thorunn, kontrabassi, rafbassi
Jonas Oppermann, píanó
Jan Hauf, slagverk

Aðgangseyrir er 3.500 krónur

Nýjar fréttir