2.3 C
Selfoss

Takmarkanir á umferð ökutækja um Þingvelli

Vinsælast

Vegna fundar forsætisráðherra Norðurlandanna verða verulegar takmarkanir á umferð ökutækja og hjólandi vegfarenda um Þingvelli mánudaginn 28. október. Þá verður öll umferð gangandi vegfarenda bönnuð.

Fundurinn er haldinn í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem er haldið í sömu viku. Það verður heimilt að aka til austurs um Þingvallaveg en lokað verður fyrir umferð til vesturs frá gatnamótum Þingvallavegar/Lyngdalsheiðar að gatnamótum Þingvallavegar/Grafningsvegar. Allri umferð til vesturs um Lyngdalsheiði frá Laugarvatni verður beint til suðurs við áðurnefnd gatnamót og niður á Biskupstungnabraut.

Þjónustumiðstöð á Leirum verður opin en Vallavegur frá þjónustumiðstöð verður lokaður. Öll umferð um Þinghelgi verður óheimil, auk þess sem aðkoma að Haki og Silfru verða lokuð. Lokanir taka gildi kl. 07:00 mánudaginn 28. október og gilda til miðnættis.

Nýjar fréttir