2.3 C
Selfoss

Óskalögin við orgelið í Skálholtsdómkirkju

Vinsælast

Októbermánuður, líka þekktur sem orgóber, er tileinkaður orgelleik í Skálholti og víða annars staðar. Í tilefni orgóber ætlar Jón Bjarnason að spila óskalög við orgelið þann 24. október kl. 20:00 í Skálholtsdómkirkju. Óskalögin við Orgelið er viðburður þar sem gestir fá að velja hvaða lög þeir vilja heyra spiluð á orgelið. Hægt verður að velja úr fjölbreyttum lista laga. Textanum verður varpað á skjá svo hægt verður að syngja með orgelleiknum.

Aðgangur er ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum. Hægt er að leggja beint inn á Fylgisjóð Skálholtsdómkirkju með millifærslu: 0133-15-1647, kt 610172-0169.

Nýjar fréttir