2.8 C
Selfoss

Sjóðurinn góði leitar eftir stuðningi

Vinsælast

Sjóðurinn góði var stofnaður árið 2008 í kjölfar bankahrunsins. Í desember 2023 veitti hann styrki úr sjóðnum að upphæð 14.203.000 milljónir.

Sjóðurinn er samstarfsverkefni Lionsklúbba, kvenfélaga, kirkjusókna, félagþjónustunnar í Árnessýslu og deilda Rauða krossins í Árnessýslu.

Hlutverk sjóðsins góða er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin og einnig á vormánuðum fyrir fermingar.

Gjafir til sjóðsins góða berast frá einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum og verslunum bæði í formi peninga og jólagjafa. Tölvubúnað sem notaður er við umsóknir og úthlutanir hefur Tölvu- og rafeindaþjónustan, TRS, lánað sjóðnum án endurgjalds í nokkur ár.

Einnig má nefna húsnæði, veitingar, prjónles að ógleymdri mikilli sjálfboðavinnu.

Starfshóp skipa fulltrúar áðurnefndra aðila og Hjálparstofnun kirkjunnar skipuleggur umsóknarferlið og annast úthlutun. Stuðst er við viðmið Hjálparstofnunar kirkjunnar varðandi mat á umsóknum.

Úthlutað er í desember úr sjóðnum vegna undirbúnings jólanna og á vormánuðum vegna ferminga.

Allar umsóknir eru trúnaðarmál.

Jólatré voru staðsett í Hveragerði og á Selfossi og hægt var að setja pakka þar undir til gjafa.

Hægt er að leggja inn á Sjóðinn góða allt árið um kring -325-13-301169 kt. 560269-2269-

Starfshópur Sjóðsins góða þakkar öllum þeim aðilum sem styrkt hafa sjóðinn á síðasta ári.

Nú biðlar sjóðurinn til fyrirtækja og almennings að leggja þessum sjóð styrk. Þörfin er mikil eins og önnur ár og sjóðurinn magur.

Nýjar fréttir