2.8 C
Selfoss

Óvenjuleg aukning í hveravirkni á Geysissvæðinu

Vinsælast

Laugardaginn 19. október sl. fór að bera á óvenjulegri aukningu í hveravirkni á Geysissvæðinu í Haukadal, en hún hefur vakið athygli bæði sérfræðinga og heimamanna. Engar breytingar hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar sem gætu útskýrt þessa auknu virkni. Kemur þetta fram á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands.

Fulltrúi frá Umhverfisstofnun á vettvangi staðfesti að margir hverir á svæðinu hafi tekið við sér og væru nú mun kröftugri en fyrr. Sérstök athygli hefur verið á Strokki, sem hefur verið óvenjuvirkur undanfarna daga og gosin hærri og kröftugri, jafnvel svo að grjót og hverahrúður hafi þeyst með gosunum. Hverinn gýs nú oftar en áður, með strókum sem ná allt að 30 metra hæð. Engar breytingar hafa þó orðið á Geysi sjálfum.

Sérfræðingar Umhverfisstofnunar, Veðurstofunnar og Almannavarna fóru yfir stöðuna á fundi nú síðdegis. Áfram verður fylgst með stöðunni og er unnið að því að greina orsök þessarar auknu virkni. Jarðhitasvæði eru mjög breytileg og er alltaf einhver hætta til staðar í nágrenni þeirra vegna sjóðandi vatns og gufu. Veðurstofan biðlar til ferðamanna á Geysissvæðinu að fara varlega og halda sig í öruggri fjarlægð frá hverunum og fylgja fyrirmælum Umhverfisstofnunar sem hefur umsjón á svæðinu.

Meðfylgjandi myndband af hvernum Blesa tók Dagur Jónsson Landvörður á svæðinu.

Nýjar fréttir