6.7 C
Selfoss

Lionsklúbburinn Embla færði Krabbameinsfélagi Árnessýslu styrk

Vinsælast

Í tilefni af Bleikum október færðu félagar í Lionsklúbbnum Emblu á Selfossi Krabbameinsfélagi Árnessýslu gjafabréf að upphæð 300.000, sem Erla Sigurjónsdóttir tók við og þakkaði fyrir. Síðan sagði hún frá starfsemi félagsins, sem er mjög mikil og ómetanleg fyrir þann fjölda sem nýtir sér hana. Eftir kaffisopa og notalegt spjall voru verslaðir bleikir bolir og ýmislegt annað sem þau selja til fjáröflunar fyrir félagið. Lionsklúbburinn óskar félaginu alls hins besta í framtíðinni.

Katrín Súsanna Björnsdóttir og Erla Sigurjónsdóttir.
Ljósmynd: Aðsend.

Nýjar fréttir