7.3 C
Selfoss

GDRN í Versölum í Þorlákshöfn

Vinsælast

Tónlistarmaðurinn og Þorlákshafnarbúinn Tómas Jónsson stendur fyrir hausttónleikaröð í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss á haustmánuðum. Nú þegar hafa verið haldnir tvennir tónleikar með Röggu Gísla og Valdimar og næstkomandi sunnudag, 20. október, tekur Tómas á móti tónlistarkonunni GDRN. Þau flytja úrval af lögum GDRN í bland við sívinsæla íslenska smelli úr hillunni sem landsmenn þekkja.

Á tónleikunum sem hefjast kl. 17 verður heimilisleg og notaleg stemning þar sem tónleikagestum er boðið upp á kaffisopa og heimagerða ástarpunga sem eru innifaldir í miðaverði. Nánari upplýsingar eru á tix.is.

Nýjar fréttir