0.3 C
Selfoss

Hjálparsveit skáta í Hveragerði sinnti útkalli í Kömbum

Vinsælast

Í gærkvöld var Hjálparsveit skáta í Hveragerði kölluð út vegna fjölda bíla í vandræðum víða í Kömbum.

Talsverð hálka hafði myndast og snjór sem saman gerði það að verkum að fjöldi bíla komst ekki leiðar sinnar og einhverjir smávægilegir árekstrar urðu. Einhverjir höfðu lent utan vegar.

Björgunarsveitarfólk á fjórum björgunarbílum ferjaði bæði fólk og bíla niður af heiðinni, en í einhverjum tilfellum voru bílar skildir eftir þar sem þeir voru.

Nýjar fréttir