6.1 C
Selfoss

Upplestur Skálds sögu í Leikfélagi Selfoss

Vinsælast

Leikfélag Selfoss blæs til kvöldstundar kringum glóðvolga Skálds sögu Steinunnar Sigurðardóttur í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi laugardaginn 12. október klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30. Valinkunnið leikfélagsfólk stígur á stokk. Íris Blandon, Hafsteinn Hafliðason og Hannes Blandon. Steinunn segir frá Skálds sögu – sem hefur undirtitilinn 74 kaflar úr höfundarlífinu. Skálds saga er einstakt allsnægtaborð að hætti Steinunnar þar sem bornar eru fram misfyndnar sögur af skáldlegum og óskáldlegum höfundardögum fyrri og síðari tíma á Selfossi, í Tókíó, Reykjavík, París og Skaftafellssýslu, svo aðeins fáir staðir séu nefndir. Einnig er hér að finna útlistanir á því hvaða aðferðir reynast þessum margreynda höfundi notadrjúgar – til dæmis við að blása lífi í skáldsagnapersónur. Meðal kaflaheita eru: Bersöglisljóð smámeyjar, Hvaðan koma hugmyndir höfundarins? og Kúnstin að taka ritstjórn. Dagskráin verður um einnar klukkustundar löng. Boðið er upp á léttar veitingar og Skálds saga verður til sölu á tilboðsverði.

Það telst til tíðinda að þetta haustið á Steinunn 55 ára skáldafmæli, en ljóðabókin Sífellur kom út þegar hún var 19 ára. Hún hefur alfarið helgað sig ritstörfum frá því hún hætti að vinna sem fréttamaður útvarps árið 1980. Steinunn er einn virtasti höfundur þjóðarinnar og hefur í gegnum tíðina sent frá sér jöfnum höndum skáldsögur og ljóð. Tímaþjófurinn er ein þekktasta skáldsaga Steinunnar. Hún var kvikmynduð með frönskum stórstjörnum og sett á Þjóðleikhússvið árið 2017, í rómaðri uppfærslu þar sem Nína Dögg Filippusdóttir lék söguhetjuna Öldu Ívarsen. Nýjasta skáldsaga Steinunnar, BÓL, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2024. Er það í annað sinn sem verk eftir hana hlýtur þau – í fyrra skiptið skáldsagan Hjartastaður árið 1996.

Steinunn og maðurinn hennar, Þorsteinn Hauksson tónskáld, festu kaup á einbýlishúsi á Selfossi 1997 þar sem þeim líkar vel að vinna og vera, ekki síst á sumrin. Þau hafa um langa hríð haft vetursetu að mestu erlendis, í París, Berlín og Suður-Frakklandi sérstaklega. Þau eiga núna annað heimili í grennd við París, í miðaldabænum Senlis.

Leikfélag Selfoss er eitt virkasta leikfélag landsins, en undanfarin tvö ár hafa staðið yfir endurbætur á Litla leikhúsinu sem eru enn í gangi og því hefur starfsemin verið í lágmarki. Nú eru endurbætur svo vel á veg komnar að fyrsta frumsýning haustsins verður kringum mánaðamótin október-nóvember. Þessi notalega kvöldstund hefst kl. 20:00 laugardaginn 12. október í Litla leikhúsinu við Sigtún og eru öll velkomin.

Nýjar fréttir