4.5 C
Selfoss

Ungmennafélagið Hekla ræður framkvæmdastjóra

Vinsælast

Bjarki Eiríksson hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Heklu í 50% starf. Ráðningin er tímabundin út maí 2025 með möguleika á framlengingu.

Bjarki er stúdent af íþróttabraut Menntaskólans að Laugarvatni og leggur stund á nám í almannatengslum við Háskólann á Bifröst. Bjarki hefur undanfarin ár starfað mest við sölu- og þjónustustörf. Samhliða störfum sínum hefur Bjarki tekið þátt í félagsmálum bæði innan og utan íþróttahreyfingarinnar. Bjarki er fæddur og uppalinn á Flúðum en er í dag búsettur á Hellu ásamt fjölskyldu sinni.

Bjarki mun hefja störf 1. október næstkomandi.

Nýjar fréttir