9.5 C
Selfoss

Selfoss semur við Atla Kristinsson

Vinsælast

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur samið við Atla Kristinsson um að ganga inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. Hann mun verða Carlos Martin Santos til halds og trausts með meistaraflokk karla sem og 3. flokk og U-lið.

Atla Kristinsson þarf vart að kynna fyrir sunnlensku handboltaáhugafólki, þó víðar væri leitað. Hann er einn af tryggari handboltamönnum sem Selfoss hefur alið og lék á sínum ferli 221 leik fyrir meistaraflokk Selfoss og skoraði í þeim 885 mörk. Þá er Atli markahæsti leikmaður í sögu ÍF Mílan. Atli hefur verið viðloðinn starf deildarinnar með ýmsum hætti um árabil, setið í stjórn, þjálfað yngri flokka og komið að ýmsum viðburðum. Það er ómetanlegt fyrir ungt lið Selfoss að fá þennan reynslubolta til að miðla sinni þekkingu.

„Ég er spenntur fyrir þessu verkefni sem komið er í gang hér á Selfossi. Margir ungir efnilegir strákar í bland við leikmenn með smá reynslu. Ég mun reyna að gera mitt besta í að kenna þeim eitthvað af því sem ég kann og þá á ég við ekki bara að skjóta á markið. Mér lýst vel á Carlos og hans hugmyndir og hef fulla trú á að hann geti leitt liðið þangað sem það á heima. Áfram Selfoss.“

Nýjar fréttir