6.7 C
Selfoss

Framkvæmdir að hefjast við nýjan gervigrasvöll á Hellu

Vinsælast

Fyrsta skóflustungan að nýjum gervigrasvelli fyrir fótboltaiðkun var tekin á Hellu á dögunum. Völlurinn verður í fullri stærð og búinn hitakerfi. Breytingar og uppbygging íþróttasvæðisins á Hellu hafa verið á teikniborðinu í nokkurn tíma og ljóst er að aðstaða til íþróttaiðkunar mun taka stakkaskiptum á næstu misserum og árum.

Teikning af vellinum. Ljósmynd: RY.

Þjótandi bauð lægst í gerð vallarins og var samningur við fyrirtækið undirritaður í kjölfar fyrstu skóflustungunnar.

t Valur Guðmundsson oddviti og Ólafur Einarsson eigandi Þjótanda ehf. handsala samninginn eftir undirritun hans. Ljósmynd: RY.

Fljótlega verður hafist handa við burðarlag og fergingu nýja vallarsvæðisins og áætlað er að völlurinn verði tilbúinn til notkunar síðsumars 2025 – ef til vill verður fyrsti leikurinn spilaður í tilefni Töðugjalda 2025.

Hópur fulltrúa og velunnara sem mættu til að fagna fyrstu skóflustungunni. Ljósmynd: RY.

Nýjar fréttir