9.5 C
Selfoss

Þjónustusamningur við Skátafélagið Fossbúa endurnýjaður

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg og Skátafélagið Fossbúar hafa endurnýjað þjónustusamning um verkefni skátafélagsins og rekstrarstyrk.

Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Thelma Karen Bjarnfinnsdóttir, félagsforingi Fossbúa, sem skrifuðu undir samninginn sem gildir út árið 2024.

Um er að ræða þjónustusamning sem felur í sér verkefni skátafélagsins við hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta og 17. júní ásamt fjölskyldukvöldvöku í október og fjölskyldugöngu í Hellisskógi í desember. Sveitarfélagið styrkir síðan félagið áfram með mánaðarlegum rekstrarstyrk.

Sveitarfélagið og skátafélagið eru að vinna að heildarendurskoðun á samningi til lengri tíma og er markmiðið að slíkur samningur verði tilbúinn síðar á árinu og taki þá gildi í upphafi nýs árs.

Nýjar fréttir