11.5 C
Selfoss

Útiguðsþjónusta í Arnarbæli

Vinsælast

Sunnudaginn 28. júlí kl.14 verður útiguðsþjónusta í Arnarbæli í Ölfusi.  Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng, organisti er Ester Ólafsdóttir og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar.  Að guðsþjónustu lokinni verður býður Kotstrandarsókn og kirkjukórinn í kirkjukaffi.  

Arnarbæli er við ósa Ölfusár.  Athugið breyttan Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss, en leiðin er vel merkt.  Kirkju er fyrst getið í Arnarbæli um 1200 og síðasta kirkja þar var ofan tekin 1909 þegar Arnarbælis- og Reykjasóknir voru sameinaðar og ný kirkja byggð á Kotströnd. Arnarbæli var prestssetur til 1942.

Ef veðrið bregst verður guðsþjónustan í Kotstrandarkirkju.

Nýjar fréttir