13.4 C
Selfoss

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Grunnskólanum í Hveragerði

Vinsælast

Samþykkt var hjá bæjarráði Hveragerðisbæjar í morgun, fimmtudaginn 18. júlí, að skólamáltíðir í Grunnskólanum í Hveragerði verði gjaldfrjálsar skólaárið 2024-2025. Áfram er þó gert ráð fyrir að foreldrar skrái börn sín í skólamáltíðir.

Ráðstöfunin hefur óhjákvæmilega í för með sér aukin fjárútlát fyrir bæjarfélagið en verið er að kanna möguleikann á að sameiginlegt, miðlægt eldhús verði í nýrri viðbyggingu grunnskólans. Eldhúsið gæti þá nýst fyrir alla leik- og grunnskóla bæjarins og myndi þá leiða til aukinnar hagkvæmni í rekstri.

Bæjarráð undirstrikar mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi gæði og hollustu skólamáltíða í Hveragerðisbæ í takt við lýðheilsumarkmið bæjarins og gildandi næringarstefnu mötuneyta Hveragerðisbæjar.

Þá vísaði bæjarráð því til velferðar- og fræðslunefndar að fjalla nánar um þessi mál á sínum vettvangi. Reiknað er með að nefndin leggi umsögn sína og tillögur fyrir fund bæjarráðs í september 2024.

Bæjarfulltrúi D-listans sat hjá við afgreiðslu málsins í bæjarráði en fagnar því að skoða eigi þann möguleika að vera með eitt eldhús fyrir skólastofnanir Hveragerðisbæjar.

Hveragerðisbær

Nýjar fréttir