10 C
Selfoss

Bæjarráð Árborgar samþykkir gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Árborgar

Vinsælast

Bæjarráð Árborgar samþykkti í dag, fimmtudaginn 11. júlí, að Sveitarfélagið Árborg myndi bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Árborgar skólaárið 2024-2025.

Fyrr í sumar voru samþykkt lög sem snúa að gjaldfrjálsum skólamáltíðum í grunnskólum landsins. Lögin má rekja til sameiginlegrar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 7. mars sl. sem hafði það að markmiði að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði.

Með samþykkt bæjarráðs er staðfest að Sveitarfélagið Árborg muni bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum Árborgar skólaárið 2024–2025. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag skráningar vegna ofnæmis og fleira verða kynntar foreldrum í upphafi skóla.

Sveitarfélagið Árborg

Nýjar fréttir