10 C
Selfoss

Erla Jóhannsdóttir ráðin leikskólastjóri

Vinsælast

Erla Jóhannsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík frá og með 1. ágúst nk.

Erla lauk B.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands og hefur lagt stund á nám í sérkennslufræði og skóla margbreytileikans.

Erla hefur margra ára reynslu af störfum á leikskóla, m.a. sem deildarstjóri, sérkennslustjóri, aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri í afleysingum við leikskólann Álfaborg í Reykholti. Erla hefur einnig fjölbreytta reynslu af félagsstörfum.

Nichole Leigh Mosty hefur látið af störfum sem leikskólastjóri frá og með síðustu mánaðamótum.

Nýjar fréttir