10 C
Selfoss

Orgelsumar á Eyrarbakka

Vinsælast

Í Eyrarbakkakirkju verður boðið upp á orgelsumar í júlí og ágústmánuði. Organistar landsins munu halda tónleika í kirkjunni á sunnudögum, kl. 17:00 í júlí og kl. 14:00 í ágúst. Dagskráin verður fjölbreytt og er frítt inn á tónleikana.

Organisti Eyrarbakkakirkju, Pétur Nói Stefánsson, hóf tónleikaröðina á sunnudaginn síðastliðinn. Um næstu helgi spilar Kristján Hrannar Pálsson, organisti Grindarvíkurkirkju.

Tónleikarnir verða auglýstir vikulega á Facebook-síðu Eyrbekkinga, Hvergerðinga og íbúa í Árborg.

Nýjar fréttir