10 C
Selfoss

Eitt af aðsetrum nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verður á Hvolsvelli

Vinsælast

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Embætti forstjóra nýrra stofnana voru auglýst sl. helgi og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar hafa aðsetur á Akureyri, forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og forstjóri nýrrar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verða eftir sem áður á Höfn í Hornafirði, en þær voru færðar þangað árið 2022.

Er markmiðið með staðsetningu aðseturs nýrra stofnana að stuðla að því að starfsfólk starfi í auknum mæli á landsbyggðinni í grennd við viðfangsefnið sem í þessu tilfelli er náttúra landsins, umhverfi og auðlindir.

„Við höfum lagt á það áherslu að færa störfin nær viðfangsefnum stofnana ráðuneytisins. Við erum þegar búin að færa aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs heim á Hornafjörð og með þessum breytingum stígum við enn stærri skref. Nýjar stofnanir verða öflugri og hagkvæmari einingar sem verða betur í stakk búnar að sinna skyldum sínum gagnvart náttúrunni og fólkinu sem þær þjónusta. Starfstöðvarnar eru þegar víða um land og því góður bragur á því að aðsetur þeirra verði utan höfuðborgarsvæðisins. Það er vert að nefna að fólki verður ekki gert að færa sig frá sínum starfstöðvum. Það er langtímaverkefni að færa störf út á land og þetta er enn eitt skrefið í þeirri vegferð,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Eitt af markmiðum í vinnu við stofnanabreytingar ráðuneytisins er að fjölga störfum á landsbyggðinni. Sú niðurstaða hefur þó ekki þá þýðingu að starfsmenn viðkomandi stofnana þurfi að flytja sig um set í sínum störfum, heldur verða ný störf auglýst á nýju aðsetri viðkomandi stofnunar, eða öðrum starfsstöðvum hennar á landsbyggðinni.

Nýjar fréttir