13 C
Selfoss

Englar og menn hefjast á sunnudaginn

Vinsælast

Hin árlega tónlistarhátíð, Englar og menn í Strandarkirkju, hefst sunnudaginn 7. júlí nk. og stendur yfir í júlímánuði með tónleikum á sunnudögum kl. 14. Á fyrstu tónleikunum koma fram Björg Þórhallsdóttir sópran, Áslákur Ingvarsson baritón, Elísabet Waage hörpuleikari, Matthías Stefánsson fiðluleikari, Örnólfur Kristjánsson sellóleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Yfirskrift tónleikanna er „Ó, Ísland fagra ættarbyggð“ en á efnisskránni eru m.a. íslensk sönglög tileinkuð 80 ára lýðveldisafmæli Íslands eftir Emil Thoroddsen, Sigvalda Kaldalóns, Atla Heimi Sveinsson o.fl., ásamt tónlist eftir J. Brahms, F. Schubert, Saint-Saens o.fl. þekktum perlum úr heimi tónbókmenntanna.

Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Björg Þórhallsdóttir.

Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Tónlistarsjóði.

Nýjar fréttir